Fara í meginmál

Þjónusta

Neyðaropnun á staðnum og fjölbreytt verkstæðisþjónusta fyrir lása, lykla og bílafjarstýringar.

Hringja: 894 5858Opið alla daga 9:00–00:00

Neyðaropnun

Við sinnum neyðarútköllum á stórhöfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Neyðarsíminn er 894 5858 og vakthafandi lásasmiður mætir á staðinn og opnar bíl eða íbúð ef lyklar eru týndir eða læstir inni.

Neyðarþjónusta Lásaþjónustunnar er opin frá kl. 09:00 til 00:00 alla daga vikunnar. Þú hringir í 894 5858 og vakthafandi lásasmiður mætir og opnar þér dyr, að því gefnu að þú sýnir skilríki sem sanna að þú sért lögmætur eigandi bifreiðar eða skráður íbúi húsnæðis.

Lásasmiðir okkar nota sérhæfð tæki sem sporna við skemmdum á þeim lásum sem við opnum. Við mætum með verkfæratöskuna, auk þess sem við höfum sérhæfð verkfæri í bílnum komi upp vandkvæði við verkið.

Þá opnum við einnig hirslur, peningaskápa og aðra lása á staðnum sé þess óskað.

Lásasmiður opnar útidyr í neyðarútkalli

Verkstæði

Við bjóðum upp á viðgerðir á hurðarlásum og svissum í flestar gerðir bifreiða, og breytingar á lásum fyrir sama lykil fyrir algengustu sílendra í hús og bíla.

Við höfum góða reynslu af að ná brotnum lyklum úr lásum. Best er að tala strax við okkur í þeim tilfellum frekar en að reyna heimatilbúnar aðgerðir sem geta valdið skemmdum á sílender.

Við smíðum lykla fyrir ýmsar tegundir af þakbogum og tengdamömmuboxum, og lykla á vespur og mótorhjól. Við skiptum einnig um rafhlöður í fjarstýringum bíla og sinnum minniháttar viðgerðum á bílafjarstýringum. Skoðunargjald fyrir fjarstýringu er að lágmarki 1.500 kr. og gengur grunngjaldið upp í viðgerð, jafnvel þó viðgerð reynist ekki möguleg.

Við smíðum lykla í nærri alla hengilása sem við seljum og bjóðum smærri öryggisskápa fyrir heimili og stofnanir.

Lyklasmíðavél á verkstæði Lásaþjónustunnar

Öryggisráðgjöf

Við erum sérfróðir um öryggismál fasteigna og fyrirtækja og veitum ráðgjöf jafnt í neyðarútköllum og á verkstæði okkar. Við seljum sílendra, læsingar, hurðapumpur og fleiri öryggisvarnir.

Lásasmiður tekur læsingarsívalning í sundur

Ertu læstur úti?

Hringdu í neyðarsímann og vakthafandi lásasmiður mætir á staðinn.

Skilríki eru ávallt krafin til að sanna eignarhald eða búsetu.

Hringja: 894 5858Opið alla daga 9:00–00:00
Neyðarsími: 894 5858Opið alla daga 9:00–00:00