Fara í meginmál

Lyklar

Bíllyklar forritaðir á verkstæði meðan beðið er, húslyklar smíðaðir og sílendrum skipt.

Hringja: 894 5858Opið alla daga 9:00–00:00

Bíllyklar

Að týna eina bíllyklinum er ekkert gamanmál og það borgar sig að láta afrita aukalykil að bílnum og geyma hann á öruggum stað. Við hjá Lásaþjónustunni forritum nýja bíllykla í flestar gerðir bíla á verkstæði okkar, en við sinnum einnig neyðarútköllum með litlum fyrirvara og forritum aukalykla á staðnum sé ekkert afrit til og forritun möguleg á annað borð.

Gefum okkur að bifreiðareigandi glati eina lyklinum og bíllinn sitji fastur á bílastæði. Á opnunartíma getum við sinnt útkallinu með litlum fyrirvara og jafnvel forritað nýjan bíllykil á staðnum. Ákveðnar upplýsingar sækjum við þó til bílaumboða, sem ekki svara síma á kvöldin. Þess vegna er oft betra að bíða til mánudags týnist eini bíllykillinn um helgi.

Við forritum flestar gerðir bíllykla á verkstæðinu meðan beðið er, sé forritun möguleg. Eigandinn mætir einfaldlega með bílinn og afhendir frumlykilinn; afritun á verkstæði tekur örfáar mínútur. Sé bíllinn hins vegar dreginn á verkstæði þar sem nýr lykill er forritaður og vélartölvu skipt út fyrir nýja, eða tölvan endurstillt, getur þjónustan kostað mun meira. Við getum í mörgum tilfellum endurstillt tölvuna og forritað lykil upp á nýtt.

Velji bíleigandi hvorki að hafa samband við lásasmið né verkstæði er hægt að leita til umboðs og óska eftir nýjum lykli, en þá hækkar verðið enn meira og ekki er óalgengt að greiða helmingi hærri upphæð fyrir nýjan fjarstýringarlykil hjá umboði. Um gífurlegan verðmun getur því verið að ræða eftir því hvaða leið er valin, og talsverður sparnaður er fólginn í því að láta forrita aukalykil í tæka tíð. Í flestu bjóðum við 20–50% ódýrari verð en bifreiðaumboðin.

Bíllyklar með fjarstýringu tilbúnir til forritunar

Húslyklar og sílendrar

Það fyrsta sem huga ætti að við kaup á fasteign eru öryggismál, og því mælum við með að skipt sé um sílender og lykla við fyrsta tækifæri þegar eign er afhent. Þá er ágætt að huga reglulega að eldri læsingum svo samræmi sé milli öryggisvarna og krafna tryggingafélaga gegn vá og óboðnum gestum.

Lásasmiður getur bæði skipt út sílender á staðnum og smíðað nýja lykla á verkstæði okkar ef þú hefur týnt húslyklum, ef lásinn er bilaður eða heimilisfólk er læst úti. Við sinnum neyðarútköllum og opnum lása á staðnum, en smíðum einnig lykla á verkstæði meðan beðið er. Aðrar algengar ástæður fyrir nýjum lyklum og sílender eru búferlaflutningar, starfsmannaskipti og uppfærsla á stöðluðum öryggisbúnaði.

Lásaþjónustan býður fjölbreytt úrval af læsingum, sílendrum og lásabúnaði og á fjölbreytt úrval lykla til, en þess utan veitum við öryggisráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Lyklar tilbúnir til afhendingar á verkstæði Lásaþjónustunnar

Ertu læstur úti?

Hringdu í neyðarsímann og vakthafandi lásasmiður mætir á staðinn.

Skilríki eru ávallt krafin til að sanna eignarhald eða búsetu.

Hringja: 894 5858Opið alla daga 9:00–00:00
Neyðarsími: 894 5858Opið alla daga 9:00–00:00